"Skólinn var mikið að kvarta undan honum í lok síðasta árs 2015, hann er oft fyrirferðamikill og hefur átt erfitt með að einbeita sér og einhvernvegin finna ró, oft uppstökkur, eyrðarlaus og hvatvís…"
"Sextán ára sonur minn er greindur með ADHD og það hefur gengið svona upp og ofan hjá honum.* Skólinn var mikið að kvarta undan honum í lok síðasta árs 2015, hann er oft fyrirferðamikill og hefur átt erfitt með að einbeita sér og einhvernvegin finna ró, oft uppstökkur, eyrðarlaus og hvatvís.*
Hann er sterkur námsmaður en bara vantað alltaf þennan frið hjá sjálfum sér til þess ná almennilega að læra og skila verkefnum. Við höfum prófað breytt mataræði sem hefur haft góð áhrif á hann en í janúar byrjaði hann að taka inn HCF, ég hafði heyrt góðar sögur af þessu bætiefni og vildi prófa.
Hann er 180 cm á hæð svo hann tekur fullorðins skammt sem eru þrjú hylki á morgnanna, helst háltíma fyrir morgunmat.†* Ég verð að viðurkenna það að ég hafði ekki trú á að þetta hefði svona mikil áhrif á hann. Tveimur til þremur vikum eftir að hann byrjaði að taka inn bætiefnin byrjuðum við að sjá mikinn mun.† Allt í einu heyrist ekkert frá skólanum lengur, hann er allur léttari, jákvæðari og greinilega líður betur þar sem hann virðist eiga auðveldara með að sitja í tímum og einbeita sér að því sem hann á að vera að gera og lenda þá síður í árekstrum við aðra. Við höfum alltaf þurft að ýta vel á eftir honum í mörgu sem hann á að vera að gera en nú sýnir hann frumkvæði í að gera verkefnin. Fyrir okkur hefur þetta breytt mjög miklu svo ég mæli hiklaust með HCF."
– Berglind Sigmarsdóttir, 40 ára, Framkvæmdastjóri, Vestmannaeyjar, 28. febrúar 2016