“Sama hvað mun koma út úr greiningunni sjálfri, þá mun ég halda áfram að gefa syni mínum HCF…”
“Sonur minn (6 ára í desember 2016) er á lokaspretti greiningarferlis fyrir ADHD.* Frá því í maí 2016 hefur hann verið að taka HCF, eina töflu á morgnana sem ég hristi saman við LGG+ og fundum við strax mun á honum.† Töflurnar draga ekki úr ADHD-inu, en þær svo sannarlega gefa honum góð tól til að takast betur á við það.†
Það sem ég tók strax eftir er að hann hætti að svitna á nóttunni, en síðan ég man eftir hefur hann svitnað mjög mikið á nóttunni, og greinilegt að HCF var að hjálpa honum að ná betri slökun í svefni. Einnig lagaðist einbeitning hans, en í allan vetur hefur hann verið í skólahóp að læra stafina og fleira og hefur enga einbeitningu haft gagnvart því, en stuttu eftir að hann fór að taka töflurnar tókst honum að skrifa nafnið sitt sjálfur í fyrsta skipti.† Leikskólakonurnar töluðu líka um að þær fyndu mun á honum í umgengni.
Drengurinn er að fara í greiningu hjá þroska og hegðunarmiðstöðinni um miðjan ágúst 2016, og ég ákvað að sleppa því að gefa honum töflurnar frá lok júlí 2016 og fram að greiningu svo ekkert sé að trufla niðurstöður hennar. Það fyndna er að það eru hlutir sem ég tók ekki eftir að höfðu lagast fyrr en eftir að ég hætti að gefa honum töflurnar. Það fóru að poppa upp gamalkunnir taktar sem við tókum ekki eftir að hefðu horfið með töku HCF, en tókum svo sannarlega eftir því þegar þeir létu sjá sig aftur, eins og tildæmis mótþróahegðunin – en nú sýnir hann aftur mótþróa við öllu sem ég segi, hvort sem það er eitthvað sem honum finnst leiðinlegt eins og að klæða sig í buxur eða eitthvað gott eins og að fá sér ís eða fara í bakaríið. Með mótþróanum mætti líka ákveðin vanlíðan aftur sem hvarf á meðan hann var á HCF, og eftir að hann hætti að taka töflurnar þá virðist hann ekki njóta sín lengur í hópastarfi.
Sama hvað mun koma út úr greiningunni sjálfri, þá mun ég halda áfram að gefa syni mínum HCF vegna þess að honum líður augljóslega mun betur þegar hann er að taka þessar töflur.”
– Hrafnhildur Viðarsdòttir, 36 ára, Framkvæmdastjóri hjá Eltu Mig ehf., Sauðárkróki, 4. ágúst 2016.