"Mér finnst ég loksins vera að ná tökum á eigin hugsunum…"
"Ég er búin að vera að taka HCF í 30 daga. Ég ákvað með að bíða með að klára fullan mánaðarskammt þangað til ég myndi lýsa reynslu minni.
Nú tek ég lyf að staðaldri við geðhvörfum. Róandi lyf, jafnvægislyf, kvíðalyf og þunglyndisslyf, just name it! Ég á það til upp í skáp. Annars myndi ég hreinlega ekki vera fær um að far a út úr húsi á hverjum degi. Ég er nýlega búin að ljúka 9 mánuða endurhæfigu á vegum Virk. Mér fannst ég vera komin á gott ról og var virkilega ánægð með alla þá vinnu sem að ég hafði lagt í sálina mína. Mér fannst ég svosem ekkert geta kvartað og var ekki að, nenna“ frekari lyfjabreytingum til að laga þennan herslu mun sem að vantaði upp á.
Ég fékk svo HCF að gjöf, sem að ég er frekar hamingjusöm yfir í dag. Þar sem að ég efast um að ég hafi keypt mér þetta sjálf, ég hugsaði bara ,,æææ, enn eitt vítamínið“. Það hefði mögulega farið svo að móðir mín hefði keypt það fyrir mig. Enda mætir hún reglulega til mín með vítamín sem að eiga að bjarga geðheilsu minni! (takk mamma :* )*
En hvaða mun sé ég?
- Mér finnst ég vera komin með yfirburða jafnaðargeð.†
- Ég vakna skýr og tilbúin í daginn (áður skipti engu hvað ég svaf mikið).†
- Ég finn svo til aldrei fyrir kvíða! Sem að mér finnst vera mesti plúsinn.†
- Ég er rólegari og almennt yfirvegaðari. Sem sýnir sig í því að ég hef þolinmæði til að hlusta á fólk og LEYFA því að klára tala. Get ss átt eðlilegar samræður. Svo tala ég líka hægar og skýrar. Þannig núna þarf ég ekki að endurtaka alveg allt sem að ég segi.†
- Mér finnst eins og allar mínar hugsanir hafi verið teknar að raða rétt í ,,skjalaskápinn“ í hausnum á mér. Það er ekki lengur þessi hvirfilbylur og ég get hugsað rólega og einbeitt mér betur að því sem að ég er að gera.†"
– Hrefna Líf Ólafsdóttir, 29ára, Nemi og Bloggari, Reykjavík 30 mars 2016