"Við höfum reynt allt mögulegt til að aðstoða hana bæði hefðbundið og óhefðbundið…"
"Við eigum 12 ára stúlku, sem hefur átt við kvíða og athyglisbrest að stríða.*
Við höfum reynt allt mögulegt til að aðstoða hana bæði hefðbundið og óhefðbundið. Við byrjuðum að gefa henni HCF í nóvember 2015,eftir að hafa lesið okkur til um það hvernig þessi samsetning á aminosýrum hefur hjálpað krökkum eins og henni.
Hún fær 2 töflur um leið og hún fer á fætur og finnum við mikinn mun á, hvernig hún er léttari í skapi og vandamálin verða heldur ekki eins stór og óyfirstíganleg þegar þau koma upp.† Við erum að hitta stúlkuna okkar, sem við þekktum vel áður en kvíðinn tók yfir.
Við erum svo þakklát fyrir þessa góðu virkni sem HCF hefur á dóttur okkar án allra aukaverkana, það er ómetanlegt að sjá hana brosa og vera ekki með áhyggjur heimsins á herðum sér."
– Laufey Jóna Högnadóttir, 42 ára, Vörustjóri, Reykjavík, 28. febrúar 2016