HCF® Happy, Calm & Focused® FQ® innihald hafa verið notuð um áratugaskeið af virtum vísindamönnum til að stuðla að auknu magni vellíðunarboðefna. …skoðaðu umbúðirnar
HCF® Happy, Calm & Focused® er hreint, áhrifaríkt og náttúrulegt fæðubótarefni fyrir heilastarfsemi. HCF er:
- án rotvarnarefna
- án húðunarefna
- án sætuefna
- án gers
- án bragðefna
- án mjólkurafurða
- án glútens
- án hneta
- án hveitis
Að auki notum við aðeins hágæða amínósýrur og önnur næringarefni sem eru ætlaðar taugakerfinu til að tryggja stöðlun og hreinleika fyrir hámarksvirkni. *HCF er framleitt samkvæmt kröfum FDA við cGMP vottaðar aðstæður. Öryggi og gæði eru efst í forgangsröðinni okkar hjá HCF. …skoðaðu vísindahlutann
Leiðbeiningar: Byrjaðu á því að taka 3 hylki daglega, hálftíma fyrir morgunmat. Taktu hylkin EINGÖNGU á tóman maga með 250 ml af vatni. Ef aðstæður eru sérstaklega streituvaldandi, mikillar einbeitingar er þörf eða ekki er fundið fyrir áhrifum af 3 hylkjum á dag eftir 1-2 vikur má auka hann í 6 hylki og/eða dreifa skammtinum yfir daginn.*
Í eftirfarandi lista útskýrum við nákvæmlega hlutverk amínósýranna í Happy Calm Focused og virkni þeirra vítamína og steinefna sem finna er í HCF blöndunni og hlutverk þeirra í að næra heilann.
Innihald | FÆST ÚR EFTIRFARANDI fæðu |
Virkni og/eða efnaboð | Magn (í einum skammti) |
---|---|---|---|
AMÍNÓSÝRUR (90% AÐ MEÐALTALI) |
1,350 mg | ||
Amínósýra F: DL-Fenýlalanín (Lífsnauðsynleg amínósýra) |
Fiski og þörungum; grænu blaðgrænmeti; eggjarauðu; nautalifur; nýrum; hrásírópi | Forveri týrósíne (E: Tyrosine), sem getur bæði orðið að þýroxíni eða skjaldkirtilshormóni; eykur dópamín, epinefrín, norepinefrín, enkefalín, endorfín og ópíóða | * |
Amínósýra Q: L-Glútamín |
Fiski (sérstaklega makríl); hveitiklíði; nautakjöti; kjúklingi; eggjum; mjólk; mjólkurafurðum; káli; rófum; baunum; spínati; steinselju; grænmetissöfum; gerjuðum mat | Eykur GABA; DNA myndun; próteinmyndun; fæðir þarmafrumur; styður við ónæmiskerfið; temprar nýrun við ammóníum; hindrar niðurbrot á próteinum örvað af kortisóli; bindur nítur | * |
NÆRINGAREFNI FYRIR TAUGAKERFIÐ (10% AÐ MEÐALTALI) |
|||
A-VÍTAMÍN (sem beta-karótín) |
Lifur; nautakjöti; svínakjöti; kjúklingi; kalkúni; fiski; gulrótum; brokkólíi; sætum kartöflum; garðkáli; smjöri; spínati; blaðgrænmeti; graskeri | Eykur serótónín; viðhald á frumuhimnum; eykur nýmyndun á frumum; andoxunarefni | 1000 AE |
E-VÍTAMÍN (sem d-alfa-tókóferól succinate) |
Sólblómaolíu; heslihnetum; valhnetuolíu; jarðhnetuolíu; ólíufolíu; jarðhnetum; maís; aspas; höfrum; kastaníuhnetum; kókoshnetum; tómötum; gulrótum; geitamjólk | Mikilvægur andoxari sem hindrar oxunarskemmdir á frumuhimnum, fituhrörnun og æðahrörnun; hjálpar líkamanum að nýta A-vítamín; stöðgar prostaglandín | 1.5 AE |
B1-VÍTAMÍN (sem þíamín HCL) |
Þurrkuðum baunum; eggjum; geri; heilkorni; brúnum hrísgrjónum; sjávarfæði | Efnaskipti á kolvetnum og amínósýrum; mikilvægt til að viðhalda heilbrigði taugakerfisins | 3 mg |
B2-VÍTAMÍN
(sem ríbóflavín) |
Kjöti; eggjum; hnetum; mjólk; grænu blaðgrænmeti; baunum; osti; fiski; alifuglakjöti; spínati; jógúrt | Ensímvirkni; amínósýrumyndun; hjálpar líkamanum að vinna orku úr próteinum, kolvetnum og fitu; myndun rauðra blóðkorna | 3 mg |
B3-VÍTAMÍN (sem níasín & níasínamíð) |
Nautakjöti, brokkólíi; gulrótum; osti; maís, hveiti; eggjum; fiski; mjólk; kartöflum; tómötum | Eykur dópamín; nýtir prótein-, fitu- & kolvetnaefnaskipti; mikilvægt fyrir heilbrigt tauga- og meltingakerfi, testósterón, önnur hormón og allar frumur | 6 mg |
B6-VÍTAMÍN (sem pýridoxín HCL) |
Hrásírópi; ger; gulrótum; kjúklingi; eggjum; fiski; avókadó; bönunum; brúnum hrísgrjónum; heilkorni | Eykur serótónín og dópamín; greiðir fyrir upptöku á amínósýrum fyrir taugakerfið; eykur GABA, enkefalín og norepinefrín | 3 mg |
FÓLINSÝRA | Byggi; baunum; nautakjöti; hveitiklíð; geri; brúnum hrísgrjónum; osti; kjúklingi; túnfiski; mjólk; laxi; heilkorni; grænu blaðgrænmeti | Nauðsynleg við niðurbrot á fitu og próteinum; við myndun rauðra blóðkorna & eðlileg efnaskipti; eykur dópamín og enkefalín | 150 µg |
B12-VÍTAMÍN (sem metýlkóbalamín) |
Svínakjöti; gráðaosti; skeldýrum; eggjum; síld; nýrum; lifur; sjávarfæði; mjólk | Mikilvæg fyrir meltingu og upptöku á próteinum; efnaskipti á kolvetnum og fitu; vinnur gegn skemmdum á mergslíðri taugafruma | 150 µg |
BÍÓTÍN | Lifur; eggjarauðu; geri; saltvatnsfiski; mjólk; sojabaunum; hrísgrjónum | Hjálpar við orkuefnaskipti, fitu- og kjarnsýrumyndun & virkar sem hjálparensím í efnaskiptum próteina, fita og kolvetna | 150 µg |
B5-VÍTAMÍN (sem d-kalsíum pantóþenat) |
Baunum; nautakjöti; lifur; saltvatnsfiski; kjúklingi; osti; eggjum; heilkorni; brauði og kornmeti; avókadó; blómkáli; grænertum; baunum; hnetum; döðlum; kartöflum | Nauðsynlegt fyrir ummyndun kolvetna, próteina, fitu og myndun á hemóglóbíni og nýrnahettuhormónum, sterum, kortisóni og asettýlkólíni | 3 mg |
KALSÍUM (sem kalsíumsítrat) |
Mjókurvörum; grænu blaðgrænmeti; sjávarfæði | Eykur serótónín; stjórnun á rafboðum í miðtaugakerfinu; virkjun á hormónum og ensímum sem eru nauðsynleg fyrir meltingu og efnaskipti | 30 mg |
JÁRN (sem járnfúmarat)‡ |
Rauðu kjöti; fiski; alifuglakjöti; linsubaunum; baunum; blaðgrænmeti; tófú; kjúklingabaunum; kúabaunum; kartöflum með hýði; heilhveitbrauði; hrásírópi | Eykur dópamín; nauðsynlegt steinefni fyrir hemóglóbín og mýóglóbín; flytur súrefni til vefja, líffæra og hjálpar vöðvafrumum við geymslu á súrefni | 3 mg |
MAGNESÍUM (sem magnesíumoxíð) |
Fiski; mjólkurvörum; mögru kjöti; heilkorni; fræjum; grænmeti | Serótónín; umbreytir kolvetnum, fitu og próteinum í orku; flutningur á rafboðum taugakerfisins | 30 mg |
SINK (sem sinksítrat & sinkpíkólínat) |
Fiski; belgjurtum; kjöti; ostrum; alifuglakjöti; sjávarfæði; heilkorni; eggjarauðu; geri | Nauðsynlegt steinefni í 20 mismunandi ensímhvörfum frá myndun á próteinum, amínósýrum og kollageni til orkubúskaps fruma | 6 mg |
KRÓM (sem krómpíkólínat) |
Rómversku salati; lauki; tómötum; geri; ostrum; lifur; heilkorni; grófu kornmeti; kartöflum | Eykur aðgengi að L-tryptófan; eykur serótónín | 225 µg |
*Ráðlagður dagskammtur (RDS) ekki ákvarðaður. • Inniheldur soja. • Viðvörun: fenýlketónúría – inniheldur fenýlalanín. • Geymist á köldum, þurrum stað og haldið frá hita, ljósi og raka. Ekki neyta vörunnar ef innsiglið hefur verið rofið eða er ekki til staðar.
‡Viðvörun: Of stórir skammtar af vörum sem innihalda járn er meginástæða fyrir eitrunum sem leiða til dauða í börnum yngri en 6 ára. Geymist þar sem börn ná ekki til. Hafið samband við lækni, sjúkrahús eða Eitrunarmiðstöð ef of stór skammtur er tekinn. Sími Eitrunarmiðstöðvar Landsspítalans er 543 2222 eða 112. |
|||
ÖNNUR INNIHALDSEFNI: jurtahylki (hýprómellósi), hrísgrjónahveiti, magnesíumsterat (jurta), kísildíoxíð. |
HCF kemur ekki í stað lyfja. Ef þú ert ólétt, með barn á brjósti eða tekur lyf í flokki mónóamínoxidasa hemla (MAO), ráðfærðu þig þá við lækni áður en þú neytir vörunnar.