"Ég vinn við heima umönnun og vinn á öllum tímum dagsins, morgunvaktirnar hafa alltaf verið frekar erfiðar, ég er langt frá því að vera morgunhress, vakna oft illa sofin og labba á veggi af þreytu…"
"Ég hafði nú ekkert mikla trú að HCF myndi virka neitt á mig og hvað þá strax, ég hef nú prófað ýmislegt í gegnum tíðina, til að fá orku, til að finna ró, til að geta sofið betur já og einsog flestir einhverja töfralausn til að losna við sykurpúkann og til að bæta minnið.†
En jæja ég ákvað að slá til og prófa þetta í 10 daga, þá var nú ekki aftur snúið, strax á fyrsta degi fann ég mun.†
Ég vinn við heima umönnun og vinn á öllum tímum dagsins, morgunvaktirnar hafa alltaf verið frekar erfiðar, ég er langt frá því að vera morgunhress, vakna oft illa sofin og labba á veggi af þreytu, en bara strax þá breyttist það og ég glaðvakna jafnvel á UNDAN vekjaraklukkunni, næ að klára heimilisverk fyrir vinnu og samt mætt fyrr í vinnuna.†
Ég sef miklu betur og sofna fyrr Ég var vön að ná mögulega 3-5 tímum á nóttunni en næ núna minnst 6 tímum sem er ótrúlegt.
Minnið er miklu betra, verandi með athyglisbrest og hugurinn allstaðar annarsstaðar en þar sem ég er, núna er meiri einbeiting ég næ að einbeita mér og klára það sem ég byrja á eða svona yfirleitt.†*
Ég hef miklu meiri orku yfir allan daginn og dett ekki í orkuleysið eftir hádegi eins mikið.
Ég er að vinna slaginn við sykurpúkan rólega, en ég á reyndar til nammi í skúffu sem ég á eftir að klára fyrst.
Fólkið sem ég sé um sér stórkostlegan mun á mér og segir að ég sé gangandi auglýsing fyrir HCF ég er víst orðin eitthvað rólegri líka.
Ég hef nú alltaf verið ánægð með lífið og hamingjusöm, núna er ég svo sátt með allt og tilbúin í allt úthvíld full orku og einbeitt.
Takk kærlega fyrir mig."
– Oddný Marie Guðmundsdóttir, Stuðningsfulltrúi, 42 ára, Reykjavík, 19 apríl 2016