"Við höfum notað HCF fyrir 9 ára dóttur okkar með mjög góðum árangri…"
"Við höfum notað HCF fyrir 9 ára dóttur okkar með mjög góðum árangri.† Hún er með greindan kvíða sem brýst oft út sem hegðunarvandi hér heima fyrir en reyndar aldrei nokkurn tíma í skólanum. Hún á það til að verða mjög neikvæð og næstum þunglynd. Við þurfum að passa mjög vel upp á mataræði, svefn og allt sem fylgir til að halda jafnvæginu.
Eftir 2 daga á HFC sáum við mjög mikinn mun, en vorum ekki viss hvort það gæti verið HCF að þakka eða bara tilviljun.† En þá tók hún sig til og settist niður og kláraði heimalærdóminn sinn sama dag og hún fékk hann, en yfirleitt er þetta barátta alla vikuna og ekki tekst alltaf að skila á réttum tíma.
Við foreldrarnir höfum séð ótrúlegan mun. Hún virðist þola miklu miklu betur þó mataræðið raskist aðeins eða svefninn. Heimanámið gengur margfalt betur, einbeitingin er mun betri. Best þykir okkur þó hvað hún er margfalt glaðari, hún brosir meira, hlær meira og finnst lífið bara almennt skemmtilegra.
Það gengur betur að sofna á kvöldin og vakna á morgnanna. Barnið sem dró sængina upp fyrir haus því hún fékk hausverk af ljósinu á morgnana er farin að vakna sjálf klukkan sjö og fara í sturtu – því það er svo hressandi.
Ég get svo sannarlega mælt með þessu vítamíni þó að það sé aldrei hægt að lofa árangri og hann getur verið misjafn eftir einstaklingum þá virkar þetta svo sannarlega á mína dömu."
– Oddrún Helga Símonardóttir, Hafnarfjörður, 28. febrúar 2016