Hámarks gæði / Samkeppnishæf verð
HCF AminoScience í samstarfi við framleiðandann okkar, er rannsóknar- og dreifingaraðili sem sér um smásölu á vísindalegri formúlu okkar af FQ amínósýru næringarefnunum. Við ábyrgjumst að fæðubótarefnin okkar skili sér frá upphafsstað, beint til viðskiptavinar með lægstum mögulegum kostnaði fyrir vöru sem inniheldur bestu mögulegu gæði á innihaldsefnum sem finnast.
Þú getur verið viss um að þú sért að fá fæðubótarefni með amínósýrum í bestu gæðum sem völ er á fyrir peninginn. Það á endanum gerir okkur kleift að gera það sem við gerum best – tryggja áframhaldandi framfarir og nýsköpun á nákvæmum formúlum fæðubótarefnanna okkar.
Framleiðsla hreinna fæðubótarefni
Í samstarfi við framleiðandann okkar sækjumst við stöðugt að eftirfarandi:
Öryggi – Hvert einasta innihaldsefni er gaumgæfilega yfirfarið í gegnum klínískar rannsóknir, þar sem eiginleikar þeirra ein og sér og í samvirkniáhrifum eru ítarlega könnuð til að tryggja að hámarksöryggiskröfum sé fylgt eftir.
Uppruni innihaldsefna – Hráefnin eru grannskoðuð í tengslum við bæði gagnsemi og umhverfissjálfbærni. Í gegnum ferlið er kostnaður ekki ráðandi þáttur um hvort nota eigi ákveðið innihaldsefni í ákveðna vöru.
Gæðaeftirlit – Öll innihaldsefnin eru meðhöndluð samkvæmt ströngum kröfum FDA , cGMP (Good Manufacturing Practices) og að auki að vera OTC vottaður framleiðandi til að tryggja hreinleika og gefa viðskiptavininum áhrifaríka reynslu í hvert skipti.
Hráefniseftirlit – Með eftirliti á uppruna allra hráefna sem við notum, getum við fengið nákvæma útlistun á því sem óhjákvæmilega leiðir til framleiðslu á hreinustu fæðubótarefnum sem völ er á.
Orðspor okkar á áhrif á heilsu og velferð einstaklinga – Ástríða okkar fyrir hreinum og áhrifaríkum innihaldsefnum hefur byggt upp orðstír okkar um að hafa góð áhrif á einstaklinginn, heilbrigði hans og velferð.
Veita flekklausa þjónustu til viðskiptavina
Þjónustudeildin okkar er mönnuð fólki sem eru meira en bara sérfræðingar um fæðubótarefnin okkar… Þau skilja mikilvægi heilbrigði heilans og hvaða merkingu það hefur fyrir þig og fjölskyldu þína.
Þjónustan okkar í gegnum pöntunarferlið er aðeins hægt að skilja með því að prófa það. Við trúum því að þjónusta eigi að vera grundvöllurinn í öllum fyrirtækjum og þar af leiðandi á það að vera eðlilegur viðburður hvenær sem þú hefur samband við HCF fyrirtækið og teymið okkar.
Við erum ávallt gegnsæ og trú vörunni okkar
Til að fullvissa viðskiptavini okkar um gæði vörunnar, þá eru fæðubótarefnin okkar ekki bara áhrifarík og í bestu gæðum sem fáanleg eru, heldur líka fullkomlega örugg og tandurhrein. Við veitum fullt gegnsæi og sannanir fyrir því að vörur okkar standist allar umbúðamerkingar:
- Við geymum vottorð fyrir öll innihaldsefni til að staðfesta styrkleika þeirra
- Öll innihaldsefni sem koma fram á umbúðum HCF eru mældar til að tryggja að þær séu til staðar í tilgreindu magni á umbúðum
- Ítarleg gögn með upplýsingum um þessi atriði eru til á skrá fyrir allar alla framleiðslulotur á HCF og varðveittar í vottuðu gæðakerfi
- Allar sendingar af HCF eru mældar, m.a fyrir örveirum, til að tryggja hreinleika hverrar sendingar. Við getum alltaf lagt fram gögn slíku til stuðnings.
Með því að standa við grunnatriðið um “Heiðarleika og vera trú vörunni okkar“, geta viðskiptavinir verið öruggir með að við stöndum með HCF fæðubótarefnunum okkar og því sem við lofum.
Tryggjum sjálfbærni fyrirtækisins til lengri tíma litið
Sem einkarekið fyrirtæki sem einbeitir sér að einni vöru getum við í smæð okkar stjórnað okkar eigin vexti; tryggt að viðskiptavinir okkar fái áfram þau gæði og þjónustu sem þeir þekkja nú þegar.
Fyrirtækið er í einkaeigu allir hluthafar í fyrirtækinu vinna hjá því sem tryggir það að við stjórnumst ekki af utanaðkomandi fjárfestum og getum tekið þær stefnur og þróun sem við teljum henta best hverju sinni.
Við Við leggjum okkur fram um að þjónusta viðskiptavini okkar á fagmannlegan hátt með framúrskarandi, hreinum og náttúrulegum fæðubótarefnum.