“Ég hef alla tíð verið mikið á iði og er hugurinn mjög fljótur að fara á flakk og vaða úr einu í annað…”
“Ég hef verið greind af sérfræðingum að vera á mörkum þess að vera meða athyglisbrest. Ég hef alla tíð verið mikið á iði og er hugurinn mjög fljótur að fara á flakk og vaða úr einu í annað. Fór ég því leita af einhverju sem gæti aðstoðað mig og prófað ýmis vítamín. Ég var komin í vana munstur og gat engan vegin farið að sofa fyrir miðnætti og þurfti þar af leiðandi að vera með nokkrar vekjaraklukkur stilltar á morgnanna og snúsaði hiklaust.
Ég byrjaði að taka HCF í byrjun mars og fyrsta vikan var frekar róleg en fann samt að ég svaf töluvert betur og nart þörfin yfir daginn var ekki eins mikil.† Í byrjun seinni vikunar var ég orðin uppgefin milli 10 og 11 á kvöldin og sofnuð fyrir miðnætti.†
Ég vaknaði betur og hef ekki þurft að snúsa síðan á fyrstu vikunni sem er ótrúlegt fyrir mig.† Ég einfaldlega vakna og á auðveldara með að koma mér frammúr og er orkumeiri yfir daginn en alveg sigruð á kvöldin og sofna því fyrr sem er frábært.
Hvað varðar námið á ég auðveldara með að setjast niður og klára eitthvað þó ég finni samt ennþá að hugurinn fer aðeins á flakk næ ég þó að áorka meiru en áður og ég er ekki sí nartandi yfir allan daginn heldur.
Ég mæli hiklaust með HCF, sérstaklega fyrir þá sem eru á mörkum athyglisbrests og þurfa að vinna úr því sjálf.* Einnig til að auka einbeitingu og laga svefninn.”*
– Rakel Rós Ágústsdóttir, Háskólanemi, 21 ára, Hafnarfjörður, 28 apríl 2016.