Undirstaðan í HCF formúlunni eru tvær lykil amínósýrur sem kallast FQ. Í samvinnu með næringarefnunum og vítamínblöndunum sem eru sérstaklega sett saman til að virkni HCF í taugakerfinu verði sem mest eykur HCF framleiðslu á vellíðunarboðefnum í heilanum, mjög svipað og það sem þú myndir finna í próteinum heilfæðis, ásamt því að styrkja jafnvægið á heilastúkunni sem sem stjórnar öllu hormónakerfi líkamans.
Amínósýrurnar í HCF® Happy, Calm & Focused® eru DL-Fenýlalanín (F) og L-Glútamín (Q) samansettar í ákveðnum hlutföllum til að ná fram sem bestri virkni ásamt völdum vítamínum og næringarefnum til að auka virkni HCF sem mest.
Amínósýra F (DL-Fenýlalanín) er lífsnauðsynleg amínósýra (fæst aðeins úr fæðunni) sem hefur mikið næringarlegt gildi og er þekktur forveri fyrir boðefni eins og dópamín, norepinefrín (noradrenalín) og epinefrín (adrenalín) ásamt því að taka þátt í losun á PEA (fenýletýlamín) sem getur gert endorfín í líkamanum meira virk. Þegar framleiðsla þessara taugaboðefna er í jafnvægi getur það aukið ýmsa þætti eins og gleði, árvekni, orku, minni, athygli, innri kyrrð og svefni til að nefna nokkur dæmi.*
Amínósýra Q (L-Glútamín) er að hluta til framleidd í líkamanum og er mikilvægur forveri boðefnisins GABA sem stuðlar m.a að róandi og slakandi verkun. L-Glútamín getur líka stuðlað að betri einbeitingu, minni og fókus ásamt því að minna löngun í sykur.
Ásamt þessum tveimur amínósýrum samanstendur HCF af sérvalinni blöndu næringarefna sem vinna sérstaklega vel með amínósýrunum og er það sem gerir HCF® Happy, Calm & Focused ákaflega áhrifaríkt. Þessi einstaka blanda af vítamínum, steinefnum og öðrum næringarefnum vinna saman að því að koma þessum tveimur amínósýrum í heila til að ná fullri virkni og áhrifum.
…fræðast meira um þessi næringarefni fyrir heilann
Hættu að svelta heilann þinn
Hvaða gagn gerir fæðubótarefni ætlað heilanum ef það kemst ekki til heilans? Margir hafa orðið pirraðir eftir að hafa prófað að taka inn hylki með aragrúa innihaldsefna ætluðum heilanum, eða jafnvel prófað DL-Fenýlalanín (F) og L-Glútamín (Q) upp á eigin spýtur án árangurs. Til að halda óæskilegum efnum frá því að komast til heilans þurfa efnin að komast í gegnum svokallaðan heilatálma (e: blood brain barrier) en hans hlutverk er að hleypa eingöngu tilteknum efnum í blóðinu yfir í heilavefinn og halda öðrum úti.
Þetta er fyrst og fremst ástæðan fyrir því að þú þarft réttu formúluna – sem samanstendur af næringarefnum sem eru ætlaðar taugakerfinu í réttum hlutföllum til að styðja við flutning á F&Q amínósýrunum.† Í öðru lagi, að taka HCF Happy, Calm & Focused á tóman maga með eingöngu vatni (venjulega eftir að maður vaknar um morguninn og hálftíma fyrir hádegis- og kvöldmat ef þurfa þykir). En með því að taka HCF inn á þennan hátt er betur stuðlað að fullri virkni.*Ef varan er tekin með mat eða öðrum fæðubótarefnum, getur formúlan á HCF Happy, Calm & Focused breyst og áhrifin af upptöku verið minni. Formúlan í HCF er sérstaklega samansett til að koma amínósýrunum í gegnum heilatálmann. …fræðstu betur um hvernig á að taka inn HCF
Skortur á nauðsynlegum taugaboðefnum
Finnurðu til gleði, ró og einbeitingu í hugsunum þínum á þessari stundu? Mundu, að í hvert skipti sem þú hugsar (sem á auðvitað við á þessari stundu sem þú lest þetta), þá er það samspil ákveðinna taugaboðefna í heilanum*.
Það eru yfir hundrað þekkt taugaboðefni sem eru á bak við mismunandi tilfinningar, hegðun og viðbrögðum. Það er gríðarlega mikilvægt að halda hlutföllum þessara taugaboðefna í jafnvægi og þar gegna amínósýrurnar í HCF lykilhlutveki.
Að næra heilann með þessum ákveðnu lykil amínósýrum og næringarefnum sem ætlaðar eru taugakerfinu og eru nauðsynlegar til að styðja við framleiðslu á þessum boðefnum, til að viðhalda jafnvægi og heilbrigði heilans.*
Hormónakerfi líkamans
Hugsaðu um alla þættina sem hormónin hafa áhrif á allan líkamann og í heilanum, og samt er í raun aðeins ein amínósýra sem fæðir undirstúkuna sem stjórnar flestu í hormónakerfi og sjálfvirka taugakerfi líkamans ásamt því að stjórna tilfinningum eins og reiði, árásargirni, sársauka og vellíðan. Sú amínósýra er – ”F – Fenýlalanín”.*