“Í dag nýt þess að fara í gönguferðir, hjóla eða fara í fótbolta með syni mínum og ég finn líka fyrir mun meiri þolinmæði gagnvart honum og næ þar af leiðandi meiri og betri stjórn á uppeldinu…”
“Soffía Dröfn heiti ég og hef ég verið að berjast við átröskun frá unga aldri og hafa veikindi mín rokkað töluvert á milli ára en fyrir 2 árum síðan var ástand mitt það slæmt að ég var farin að missa mátt í útlimum og næringarskortur orðinn mikill.
Ég byrjaði að taka inn HCF fyrir þremur mánuðum og í dag hef ég meiri matarlyst en nokkru sinni fyrr og ég er LOKSINS hætt að spá í sífellu hvað ég set ofan í mig.† Ég man ekki eftir því að hafa verið svona lengi frá átröskun síðan sjúkdómurinn gerði fyrst vart við sig.
Mér líður mun betur og finnst ég hafa náð ótrúlegum tökum á sjúkdómnum með því að taka HCF sem er alveg mögnuð tilfinning :)*
Ég fór lengi vel á æfingu 2x á dag til að brenna en ég hef ekki stigið fæti inní líkamsræktarstöð síðan einni viku eftir ég byrjaði á HCF.† Þessi áráttal að fara svona oft í ræktina tengdist átröskunarsjúkdómnum því ég vildi alltaf vera grennri og grennri en mátti alls ekki við því.*
Í dag nýt þess að fara í gönguferðir, hjóla eða fara í fótbolta með syni mínum og ég finn líka fyrir mun meiri þolinmæði gagnvart honum og næ þar af leiðandi meiri og betri stjórn á uppeldinu :)
Ég er greind með ADHD og er á lyfjum við því, svefnlyfjum og tek einnig inn kvíðastillandi lyf
Ég hef núna verið að taka inn HCF á hverjum morgni í þrjá mánuði og er hætt á svefnlyfjum og hef náð að minnka kvíðalyfjaskammtinn töluvert mikið.*†
Ég hef átt í erfiðleikum að sofna á kvöldin og vakna á morgnana en núna steinsofna ég nánast um leið og ég leggst á koddann, vakna hress inn í daginn og er mun einbeittari, rólegri og get skipulagt mig betur.
Ég er þjónn svo ég þarf að gefa af mér og eftir að ég fann þetta UNDRA vítamín HAPPY – CALM – FOCUSED er ég loksins búin að kynnast sjálfri mér, ég GET loksins verið ein með með sjálfri mér og notið þess.
Ég mæli eindregið með þessari snilld sem hefur gert mig að þeirri mannneskju sem ÉG VEIT AÐ ÉG ER.
BE HAPPY!
Kær kveðja, Soffía”
– Soffía Snæbjörnsdóttir, 28 ára, Þjónn, Reykjavik, 27. maí 2016.