Heilsu- og öryggistilmæli, Friðhelgisstefna
Notkunarskilmálar
Þetta samkomulag er á milli HCF AminoScience(“HCF”) og þín (” þú” eða “viðskiptavinur”). Í þessum hluta eru kynntir fyrir notkunarskilmálarnir sem eiga við um notkun þína á vefsvæði HCF (skilgreint hér fyrir neðan) og öllum öðrum áskriftarvörum eða þjónustu sem HCF býður til sölu og/eða samstarfsaðilar (einnig nefndir “HCF”). Rétturinn til að nota hverja þá vöru eða þjónustu sem HCF býður upp á, á við um þig einan og er ekki hægt að yfirfæra á aðra aðila. HCF áskilur sér rétt til að gera breytingar á vefsvæðum sínum, stefnu og þessum skilmálum hvenær sem er og án fyrirvara.
1. Notkun á HCF vefsvæðinu
Skilyrði – Að undanskildu því sem skýrt er kveðið á um hér fyrir neðan, þá má HCF vefsvæðið aðeins vera notað af aðilum sem geta gert lagalega bindandi samninga sem lúta viðeigandi lögum. Engin undir 18 ára aldri má nota vefsvæði HCF án eftirlits foreldris eða forráðamanns. Með notkun þinni á vefsvæði HCF verður álitið að þú sért 18 ára eða eldri, eða að þú sért að nota HCF vefsvæðið með leyfi foreldris eða forráðamanns. Við krefjumst þess að öll kaup séu gerð af annað hvort (i) einstaklingi 18 ára eða eldri eða (ii) af yngri einstaklingi sem hefur fengið leyfi foreldris eða forráðamanns, sem hægt er að staðfesta, til að kaupa vörur á HCF vefsvæðinu.
Leyfi og takmarkanir – Þér er hér með veittur takmarkaður, almennur réttur til að nota efni og gögn á HCF vefsvæðinu innan eðlilegrar notkunar þinnar á HCF vefsvæðinu. Við munum halda eignarrétti á hugverki okkar og þú munt ekki fá neinn rétt þar af, sökum þessara skilmála eða á annan hátt, nema að það sé skýrt kveðið á um það í þessum skilmálum. Þú hefur engan rétt til að nota, afrita, sýna, koma fram með opinberlega, búa til afleidd verk af, dreifa, áframsenda eða veita viðbótarnytjaleyfi á gögnum eða efni sem er til staðar á HCF vefsvæðinu, nema að það sé skýrt kveðið á um það í þessum skilmálum. Með því að deila, geyma eða dreifa einhverju efni á HCF vefsvæðinu okkar gefur þú okkur hér með, á heimsvísu, almennan og varanlegan rétt með viðbótarnytjaleyfi, án rétt á greiðslu, og leyfi til að nota, afrita, sýna, koma fram með opinberlega, búa til afleidd verk af, dreifa, láta dreifa, áframsenda og veita viðbótarnytjaleyfi á þessu efni í hvers kyns mynd, í öllum fjölmiðlum sem þekktir eru og sem verða til héðan í frá á heimsvísu. Þú hér með fellur endanlega frá öllum kröfum byggðum á siðferðilegum réttindum eða svipuðum kenningum, ef einhverjar. Við höfum ekki burðina til að stjórna eðli notendahluta HCF vefsvæðisins. Þú ert eingöngu ábyrgur fyrir þínum hluta í samskiptum við aðra notendur á HCF vefsvæðinu og hverju því efni sem þú deilir. Við verðum ekki gerð ábyrg fyrir hverjum þeim skemmdum eða tjóni sem kann að verða af hverju því efni eða þínum samskiptum við aðra notendur á HCF vefsvæðinu. Við áskiljum okkur rétt, en skuldbindum okkur ekki, til að fylgjast með samskiptum á milli þín og annarra notenda á HCF vefsvæðinu og gera hverjar þær ráðstafanir til að takmarka aðgang að, eða tiltækileika, á hverju efni sem við eða annar notandi HCF vefsvæðisins telur vera klámfengið, ósæmilegt, lostafullt, klúrt, ofsafengið, áreitið eða hneykslanlegt á annan hátt (þar með talið, en einskorðast ekki við, ef það brýtur í bága við þessa skilmála).
Óleyfileg hegðun – Með notkun þinni á HCF vefsvæðinu máttu ekki: (i) ljóstra upp iðnaðarleyndarmálum, brjóta á einkarétti, vörumerkjum, höfundarrétti, útgáfurétti eða öðrum réttum hjá hvaða málsaðila sem er; (ii) rjúfa eða standa í vegi fyrir öryggi eða notkun á HCF vefsvæðinu eða öðrum vefsíðum sem tengjast HCF vefsvæðinu; (iii) standa í vegi fyrir eða skaða HCF vefsvæðið, þar með talið, en einskorðast ekki við, með notkun á veirum, afturköllunaryrkjum, trójuhestum, skaðlegum kóðum, ping-flóði, DoS-árásum, röngum IP-tölum, beinum eða tölvupóstum, eða með svipuðum aðferðum eða tækni; (iv) villa á sér heimildir, rangfæra tengsl þín við annan aðila eða stofnun, þar með talið (en einskorðast ekki við) okkur, eða þykjast vera einhver annar; (v) reyna að öðlast aðgang að HCF vefsvæðinu án heimildar; (vi) taka þátt í, með beinum eða óbeinum hætti, útbreiðslu á ruslpósti, keðjubréfum eða öðrum óumbeðnum beiðnum; (vii) safna, handvirkt eða með sjálfvirkum aðferðum, upplýsingum um aðra notendur eða HCF vefsvæðið án skriflegs samþykkis frá þeim eða okkur; (viii) djúptengja einhvern hluta HCF vefsvæðisins eða ramma eða sýna með svipuðum hætti okkar eignarrétt, þar með talið, en einskorðast ekki við, HCF vefsvæðið; (ix) leggja fram rangar eða blekkjandi upplýsingar til okkar; (x) brjóta gegn lögum, reglum eða reglugerðum; (xi) taka þátt í einhverjum athöfnum sem trufla þriðja aðila í að njóta HCF vefsvæðisins; eða (xii) aðstoða eða hvetja einhvern þriðja aðila til að taka þátt í einhverjum athæfum sem eru bannaðar samkvæmt þessum notkunarskilmálum.
Utanaðkomandi vefsíður – HCF vefsvæðið inniheldur tengla á aðrar vefsíður, upplýsingar og auglýsingar. HCF ber hvorki ábyrgð á tiltækileika þessara utanaðkomandi vefsíða né styður það við eða ber ábyrgð á innihaldi, auglýsingum, vörum eða öðru efni sem er til staðar á, eða í gegnum þessar utanaðkomandi vefsíður. Undir engum kringumstæðum skal HCF vera gert lagalega ábyrgt, með beinum eða óbeinum hætti, fyrir tapi eða tjóni sem notandi verður fyrir vegna, eða talið að sé vegna, notkunar á, eða trausts sem hann leggur á, hvað það efni, vöru eða þjónustu sem í boði er á þessum utanaðkomandi vefsíðum. Þess konar málefnum ættir þú að beina til stjórnenda eða vefstjóra þessara utanaðkomandi vefsíða.
Óviðráðanleg atvik – Við verðum ekki gerð lagalega ábyrg fyrir að uppfylla ekki notkunarskilmálana vegna atburða sem eru ekki á okkar valdi, þar með talið, en einskorðast ekki við, verkfall, netbilun eða truflun á þjónustu, bilun á boðskiptamiðlum, bilun hjá þjónustuveitu, eldsvoða, hryðjuverk, náttúruhamfarir eða stríð.
2. Fyrirvari um ábyrgð; Takmörkun bótaábyrgðar
Einhverjar upplýsingar á HCF vefsvæðinu geta innihaldið prentvillur, röng verð og aðrar villur eða ónákvæmni. Við tökum enga ábyrgð á þess háttar villum eða yfirsjónum og áskiljum okkur rétt til að: (i) afturkalla tilboð sem eru gefin upp á vefsvæði HCF; (ii) leiðrétta allar villur, ónákvæmni eða yfirsjónir; og (iii) breyta verðum, inntaki, kynningum, vörulýsingum eða útlistun eða öðrum upplýsingum á HCF vefsvæðinu.
HCF hvorki styður né er ábyrgt fyrir sannleiksgildi eða áreiðanleika á hverjum þeim skoðunum, ráðleggingum eða fullyrðingum sem birtast á vefsvæði HCF, eða fyrir móðgandi, ærumeiðandi eða klámfengnum birtingum. Undir engum kringumstæðum mun HCF vera gert ábyrgt fyrir tapi eða tjóni vegna trausts sem þú leggur á upplýsingar sem eru fengnar af vefsvæði HCF. Það er á þína ábyrgð að meta sannleiksgildi, heilindi eða notagildi á hverjum þeim upplýsingum, skoðunum, ráðleggingum eða öðru efni sem er til staðar á vefsvæði HCF. Leitaðu vinsamlegast ráða hjá viðeigandi fagfólki varðandi mat á upplýsingum, skoðunum, ráðleggingum eða öðru efni, þar með talið, en einskorðast ekki við, fjármála-, heilsu- eða lífstílsupplýsingar, skoðanir, ráðleggingar eða annað efni.
3. Skaðleysisgreiðslur
Þú samþykkir að verja og gera HCF og samstarfsaðila, stjórnendur, yfirmenn, starfsfólk og fulltrúa HCF skaðlaust gagnvart öllum staðhæfingum og kostnaði, þar með talið lögfræðikostnaði, sem rís upp vegna notkunar á vefsvæði HCF, þar með talið staðhæfingum annarra notenda á þínum vörum, aðgangi, afurðum og félagsaðild.
4. Riftun
Við höfum rétt til að loka aðganginum þínum að vefsvæði HCF ef við teljum að þú hafir brotið einhverja af skilmálunum. Ef aðgangur þinn að vefsvæði HCF verður lokaður, áskiljum við okkur rétt til að beita hvaða aðferðum þeim sem við teljum nauðsynlegar til að koma í veg fyrir óheimilaðan aðgang að vefsvæði HCF, þar með talið, en einskorðast ekki við, tæknilegar hindranir, IP-skráningar og beint samband við netþjónustuna þína. Þessir skilmálar vara um ótiltekinn tíma nema ef við ákveðum að enda þá, burtséð frá því hvort einhver reikningur sem þú stofnar er lokaður af þér eða okkur eða ef þú hefur rétt til að hafa aðgang að eða nota vefsvæði HCF.
5. Deilumál
Öll deilumál sem koma upp og tengjast þessum skilmálum (þar með talið uppsetningu, framkvæmd eða meint samningsbrot) eða notkun þinni á vefsvæði HCF verða eingöngu leidd til lykta af gerðardómi í Miami, Flórída, frammi fyrir og í samræmi við reglur bandaríska gerðardómstólsins. Gerðardómurinn er bindandi og má nota sem dómsúrskurð í hvaða hæfu lögsagnarumdæmi. Eins og viðeigandi lög leyfa, mun engin gerðardómur vegna þessara skilmála vera sameinaður gerðardómi hjá öðrum aðila tengt þessum skilmálum, hvort sem í gegnum sameiginlegan gerðardóm eða annað. Þrátt fyrir hið fyrrnefnda, munum við hafa rétt á að fara fram á lögbann eða leita annarra lagalegra úrræða fyrir alríkis- eða fylkisdómstólum í Miami, Flórída, til að framfylgja þessum skilmálum og koma í veg fyrir að brotið sé í bága við réttindi þriðju aðila, og fallast (báðir/allir) aðilar hér með á það með óafturkallanlegum hætti að lúta lögsögu slíkra dómstóla, verði annarra lagalegra úrræða leitað.
Þú viðurkennir og samþykkir, burtséð frá hverjum gagnstæðum reglugerðum eða lögum sem kunna að vera, að allar kröfur eða tilefni til aðgerða sem geta komið upp hjá þér sem tengjast eða hafa eitthvað með notkun þína á vefsvæði HCF að gera, verða að vera lagðar fram innan eins almanaksárs eftir að slík krafa eða tilefni til aðgerða kemur upp, annars ógildast til frambúðar.
6. AFSAL RÉTTINDA Á HÓPMÁLSÓKN
MEÐ ÞVÍ AÐ SAMÞYKKJA ÞESSA SKILMÁLA, AFSALAR ÞÚ HÉR MEÐ, MEÐ ÓAFTURKALLANLEGUM HÆTTI, HVERJUM ÞEIM RÉTTI SEM ÞÚ GÆTIR HAFT TIL AÐ SAMEINAST MEÐ KRÖFUM ANNARRA Í HÓPMÁLSÓKN EÐA SVIPUÐUM RÉTTARFARSLEIÐUM. HVERJAR ÞÆR KRÖFUR SEM KOMA UPP, TENGJAST EÐA HAFA EITTHVAÐ MEÐ ÞESSA SKILMÁLA AÐ GERA, VERÐUR HVER FYRIR SIG AÐ SÆKJA.
Lagalegur fyrirvari
Fyllyrðingar settar fram af HCF hafa ekki verið yfirfarnar af FDA. Þessari vöru er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma. Árangur einstaklinga er mismunandi. Leitaðu ráða hjá lækni varðandi greiningar og meðhöndlun. Upplýsingarnar sem koma fram á síðunni er ekki ætlað að greina einhverja sjúkdóma eða heilsufarsástand eða ráðleggja einhverja meðferð. Þær eru aðeins til upplýsinga, fyrir stuðning og eflingu á góðri heilsu í samvinnu við lækni með tilskyld leyfi. Í tilfellum þar sem einstaklingur notar upplýsingarnar sem koma fram á þessu vefsvæði án samþykkis læknis með tilskyld leyfi, er sá einstaklingur að sjá sjálfur um greininguna.
Höfundur, útgefandi eða drefingaraðilar taka enga ábyrgð á þessum upplýsingum ef þær skyldu notaðar í stað þjónustu læknis með tilskyld leyfi. Engin trygging er veitt fyrir afköstum eða verkan varanna sem minnst er á á vefsvæðinu. Enn fremur eru þessar upplýsingar einungis byggðar á hefðbundinni og sögulegri notkun á tilteknum amínósýrum eða næringarefnum taugakerfisins, eða á klínískum rannsóknum sem eru almennt ekki viðurkenndar af ríkisstofnunum í Bandaríkjunum eða lyfjastofnun.
Þessar upplýsingar hafa hvorki verið yfirfarnar af Bandarísku matvæla- og lyfjastofnuninni né farið í gegnum stífar samanburðarrannsóknir sem krafist er áður en tilteknar vörur geta endanlega verið álitnar gagnlegar, eða mögulega hættulegar, og skrifað upp á við meðhöndlun á ákveðnum sjúkdómi eða heilsufarsástandi.
Heilsu- og öryggistilmæli
HCF notar einungis hágæða amínósýrur og næringarefni fyrir taugakerfið til að tryggja hreinleika og stöðlun fyrir hámarksvirkni.* HCF er framleitt samkvæmt viðmiðunarreglum FDA eru cGMP vottaðar . Öryggi og gæði eru efst í forgangsröðinni hjá okkur. HCF kemur ekki í stað lyfja. Geymið þar sem börn ná ekki til. Geymist á köldum, þurrum stað og haldið frá hita, ljósi og raka. Ekki neyta vörunnar ef innsiglið hefur verið rofið eða er ekki til staðar.
Fræðstu um eiginleika amínósýranna og annara næringarefna sem eru í HCF formúlunni, ef þú þekkir ekki til þeirra, áður en þú neytir þeirra. Kynntu þér efnin gaumgæfilega og/eða ráðfærðu þig við viðeigandi lækni eða sérfræðing. Ef þú tekur inn lyfseðilsskyld lyf eða átt við heilsubrest að stríða hafðu þá samband við viðeigandi lækni áður en þú notar fæðubótarefni. Amínósýrur & næringarefni taugakerfisins hafa sýnt með óyggjandi hætti að þau virki. Bara vegna þess að lítið magn virki vel þýðir EKKI að meira sé betra. Sem einstaklingar höfum við öll mismunandi líkamsgerð, svörun, ofnæmisviðbrögð og mögulega heilsubresti. Eftirfarandi eru einungis leiðbeiningar um notkun. Þær fela meðal annars í sér innihaldsefni sem eru í vörum okkar. Listinn veitir ekki upplýsingar um hugsanlegar milliverkanir og frábendingar við lyfseðilsskyld lyf. Því er best að ræða við lækni um þessi mál.
Á ég að tala við lækni eða hjúkrunarfræðing áður en ég nota fæðubótarefni?
Þetta á sérstaklega við fyrir ákveðna hópa. Fæðubótarefni eru ekki laus við hættu undir ákveðnum kringumstæðum. Ef þú ert ólétt, með barn á brjósti eða ert með króníska sjúkóma eins og sykursýki, háþrýsting eða hjartasjúkdóma, vertu þá viss um að leita ráða hjá lækni eða lyfjafræðingi áður en þú kaupir eða tekur inn fæðubótarefni. Þótt fæðubótarefni með amínósýrum, vítamínum og steinefnum séu almennt talin örugg, er vissara að leita til læknis eða lyfjafræðings áður en þú neytir þessara eða annarra fæðubótarefna. Ef þú ert með áform um að nota fæðubótarefni í stað lyfja eða með einhverjum lyfjum, ráðfærðu þig þá fyrst við lækni eða lyfjafræðing. Mörg fæðubótarefni innihalda virk efni sem hafa öfluga líffræðilega virkni og öryggi þeirra er ekki alltaf tryggt fyrir alla notendur.
Sum fæðubótarefni gætu haft áhrif á lyfseðilsskyld lyf, sem og önnur lyf.
Við að taka inn fleiri en eina tegund fæðubótarefna eða nota þau með lyfjum (lyfseðilsskyld lyf sem og önnur lyf) getur undir ákveðnum kringumstæðum haft neikvæðar afleiðingar. Vertu vakandi fyrir ráðleggingum um þessar vörur, hvort sem þau eru tekin sér í lagi eða í samfloti með öðrum. Leitaðu ráðlegginga hjá lækni eða lyfjafræðingi fyrir notkun ef þú ert með/gætir verið með nýrna- eða lifrarsjúkdóm.
Sum fæðubótarefni geta haft óæskileg áhrif í skurðaðgerðum.
Mikilvægt er að upplýsa lækninn þinn um amínósýrurnar, vítamínin, steinefnin eða hver önnur fæðubótarefni sem þú ert að taka, sérstaklega fyrir áformaðar aðgerðir. Þú gætir verið beðinn um að hætta að taka inn þessar vörur amk. 2-3 vikum fyrir aðgerðina til að koma í veg fyrir mögulegar varasamar víxlverkanir við lyf – eins og breytingar á hjartslætti, blóðþrýstingi og auknar blæðingar – sem gætu haft neikvæð áhrif á útkomu aðgerðarinnar.
Fullyrðingar settar fram af HCF hafa ekki verið yfirfarnar af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu. FDA hvorki yfirfer né rannsakar fæðubótarefni. Þessum vörum er ekki ætlað að greina, meðhöndla, lækna eða koma í veg fyrir veikindi eða sjúkdóma. Leitaðu ráða hjá lækni varðandi greiningar og meðhöndlun.
Friðhelgisstefna
Þessi friðhelgisstefna útskýrir fyrirkomulagið milli HCF AminoScience (“HCF”) og þín (“þú” eða “Viðskiptavinur”) varðandi persónuupplýsingar sem við fáum um þig. Með því að nota HCF, aðgangur þinn að HCF, eða nota aðra þjónustu HCF (undir heitinu Þjónusturnar), ertu að samþykkja fyrirkomulagið sem er lýst í þessari stefnu.
Stefnan tilkynnir þér: (a) hvaða persónuupplýsingum um þig er safnað þegar þú skráir þig inn á HCF og/eða notar Þjónusturnar; (b) hvernig upplýsingarnar eru sóttar; (c) hvernig upplýsingarnar eru notaðar og þeim deilt; (d) okkar viðleitni til að viðhalda öryggi viðkvæmra upplýsinga; og (e) önnur atriði varðandi þínar persónuupplýsingar og okkar stefnu.
Þessi stefna á ekki við um vinnubrögð fyrirtækja sem HCF hvorki á né stjórnar, eða fólki sem hvorki starfar fyrir okkur né sem við höfum umsjón yfir.
Upplýsingasöfnun og notkun
Upplýsingum sem er safnað af HCF eru geymdar í einum, öruggum gagnagrunni, sem einungis HCF hefur aðgang að. HCF safnar upplýsingum frá borgandi viðskiptavinum, eða þeim sem nota, reyna að nota eða kaupa HCF vörur eða þjónustuna á mismunandi tímapunktum og staðsetningum, og þá gæti allt eða sumt átt við um þig.
- Kökur
Kökur eru gagnapakki sem notaður er til greiningar sem við við komum fyrir á tölvunni þinni í gegnum vafrann þinn. - Upplýsingaskrár
HCF tekur á móti og skrásetur upplýsingar sjálfkrafa frá vafranum þínum og yfir á skráaþjón hjá sér, þar á meðal IP-tölu, upplýsingar í kökum og síðuna sem þú óskaðir eftir. Við notum IP-tölur og kökur til greina notkun, stjórna síðunni, fylgjast með nethegðun notenda og til að taka saman lýðfræðilegar upplýsingar og nota sem heildargögn. IP-tölur eru ekki tengdar við þínar persónuupplýsingar.
Notkun upplýsinga
Upplýsingar sem við söfnum eru almennt notaðar af eftirfarandi ástæðum:
- Að búa til þætti sem gera þjónustuna sem í boði er á vefsvæði okkar þægilegri í notkun. Þetta á t.d. við um hraðari leit, betri stuðning og tímanlegar tilkynningar um nýjar þjónustur og sértilboð.
- Til að bæta viðleitni okkar í markaðs- og kynningarmálum, til að greina vefsíðunotkunina, bæta innihaldið og framboð okkar á vörum og aðlaga innihald, útlit og þjónustu vefsvæðisins að notendum. Þannig bætum við okkar þjónustu og sníðum hana betur að þínum þörfum.
- Til að leysa úr deilum, laga vandamál og framfylgja notkunarskilmálum okkar. Stöku sinnum gætum við litið yfir einhvern fjölda af notendum til að bera kennsl á vandamál eða leysa úr deilum.
- Miðlun á upplýsingum. Við gætum notað persónuupplýsingarnar sem þú gefur okkur til að færa þér upplýsingar um útvaldar smásöluvörur með pósti, tölvupósti, álínis eða símleiðis. HCF gæti selt eða eða leigt tölfræðileg heildargögn og ákveðnar upplýsingar um notendur til samstarfsaðila í markaðsmálum eða til þriðja aðila. Ef þú vilt að HCF hætti framvegis að miðla upplýsingum sem það hefur um þig, getur þú tilkynnt okkur um það með því að hafa samband við þjónustudeild.
Við áskiljum okkur rétt til að gefa upp persónuupplýsingar, þar á meðal viðkvæmar upplýsingar, þegar við teljum svo sé viðeigandi til að framfylgja lögum eða svara beiðni frá yfirvöldum, til að vernda réttindi eða eignir HCF eða til að framfylgja notendaskilmálum okkar. Ef svo fer að HCF eða efnislega allar eignir þess eru teknar yfir af þriðja aðila, geta upplýsingar um notendur og viðkvæmar upplýsingar verið hluti af yfirfærðum eignum.
Notkun á söfnuðum gögnum
Við notum persónuleg og lýðfræðileg gögn og upplýsingar úr þínum prófíl til að auka reynslu þína af vefsvæðinu okkar og til að gera okkur kleift að koma á framfæri efni sem við álítum að þú getir haft áhuga á. Við notum tengiliðsupplýsingar til að senda þér upplýsingar um HCF og kynningarefni frá öðrum samstarfsaðilum. Við gætum einnig notað persónuleg og lýðfræðileg gögn og upplýsingar úr þínum prófíl til að bæta vefsvæðið okkar, fyrir tölfræðilegar greiningar og í auglýsingaskyni, senda tilkynningar í SMS og vegna ritstjórnar og svörunar fyrir auglýsendur okkar. Upplýsingar sem við söfnum geta verið bætt við gagnagrunnana okkar og notaðar síðar í símakynningu, SMS textaskilaboðum, tölvupóstum eða bréfpósti varðandi uppfærslur á vefsvæðinu, nýjum vörum og þjónustu, komandi atburðum og/eða stöðu á pöntunum sem gerðar eru álínis. Með því að nota þetta vefsvæði samþykkirðu að það megi hafa samband með þeim leiðum sem taldar eru upp í þessum hluta jafnvel þótt númerið þitt sé bannmerkt, sé innanhússnúmer eða með svipaða skráningu.
Fulltrúar
Við ráðum önnur fyrirtæki og einstaklinga til að gegna störfum af okkar hálfu. Þar á meðal hafa umsjón með pöntunum, afhenda pakkningar, senda bréfpóst og tölvupóst, fjarlægja endurteknar upplýsingar á meðlimaskrám, gagnagreiningu, útvega markaðsaðstoð, úrvinnsla á kreditkortagreiðslum og útvega þjónustu fyrir meðlimi. Þeir hafa aðgang að persónulegum og viðkvæmum upplýsingum til að geta leyst verkin af hendi en mega ekki nota þær í öðrum tilgangi.
Sértilboð og tilkynningar
Virkir viðskiptavinir og fyrrverandi viðskiptavinir munu stöku sinnum fá upplýsingar um vörur, þjónustur, sértilboð og fréttabréf.
Öryggi
HCF gerir allar ráðstafanir til að vernda viðkvæmar upplýsingar notenda og meðlima sinna, bæði álínis og ekki á netinu. Viðkvæmu upplýsingarnar þínar eru varðar með lykilorði vegna friðhelgi þinnar og öryggis. Viðkvæmar upplýsingar eru dulkóðaðar og verndaðar álínis með besta hugbúnaðinum sem völ er á – SSL.
Viðkvæmar upplýsingar eru einnig varðar á skrifstofum okkar. Aðeins starfsfólk sem þarf upplýsingar til að inna ákveðið verk af hendi (til dæmis gjaldkeri eða starfsmaður í þjónustudeildinni) fá aðgang að viðkvæmum upplýsingum. Þar að auki eru allir starfsmenn upplýstir um öryggisráðstafanir okkar og breytingar á þeim. Að lokum, netþjónarnir sem við geymum viðkvæmar upplýsingar á eru staðsettir við öruggar aðstæður. Ef þú hefur einhverjar spurningar um öryggið á vefsvæðinu okkar, geturðu sent okkur hjá HCF tölvupóst með því að smella hér.
Önnur vefsvæði
HCF áframsendir notendur yfir á önnur vefsvæði. Vinsamlegast hafðu það í huga að HCF er ekki ábyrgt fyrir viðskiptum og öryggisráðstöfunum á þessum vefsvæðum. Við hvetjum þig til að vera á varðbergi þegar þú yfirgefur vefsvæðið okkar og lesa lagalega fyrirvara og friðhelgisstefnur á öllum vefsvæðum sem þú heimsækir.
Tilkynningar um breytingar
Ef við ákveðum að breyta stefnu okkar, tilkynnum við um breytta stefnu á heimasíðu okkar eða með öðrum leiðum þannig að notendur séu alltaf upplýstir um hvaða upplýsingar við söfnum, hvernig við notum þær og hvenær við gefum þær upp.
COPPA (Children’s Online Privacy Protection)
HCF þjónar almennum notendum á vefnum. Við styðjum og fylgjum COPPA (Childrens Online Protection Act) og við söfnum ekki, af okkur vitandi, upplýsingum um börn yngri en 13 ára að aldri, eða deilum við þannig upplýsingum til þriðja aðila. Börn yngri en 18 ára mega nota HCF undir eftirliti foreldris eða forráðamanns.
Reglufylgni
Þessi yfirlýsing um friðhelgi á við um vefsvæðin sem við eigum og eru stjórnuð af okkur. Af því að þetta vefsvæði vill sýna ábyrgð á friðhelgi þinni, þá vinsamlegast hafðu samband við HCF ef þú hefur spurningar eða áhyggjur varðandi þessa stefnu.
Síðast uppfært: 9. febrúar, 2016